Jafnlaunastefna
Ferill leggur metnað sinn í að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, þannig að launamunur sé ekki til staðar. Stjórnendur skuldbinda sig því að fara eftir þeim lögum og reglum sem um starfsemina gilda. Ferill hefur í þessu samhengi innleitt verklag og skilgreint viðmið við ákvörðun launa þar sem starfsfólk fær greitt fyrir sín störf út frá verðmæti þess, óháð kyni eða öðrum ómálefnalegum ástæðum. Skuldbindur fyrirtækið sig til að framfylgja jafnlaunastefnunni í hvívetna og rýna reglulega þau markmið tengd launajafnrétti sem sett eru hverju sinni.